Leiðbeiningar fyrir Fentanýl strimla
Skref 1
Settu vatn í glas. Settu snefil af efninu sem þú ert að prófa út í vantið.
Skref 2
Dýfðu strimlinum upp að MAX línunni og bíddu þangað til vatnið er búið að skríða upp strimilinn. Eftir það skaltu taka strimilinn upp úr vatninu og bíða í 5 mínútur.
Skref 3 - Niðurstaða
Á strimlinum birtast línur sem gefa til kynna hvort efnið innihaldi Fentanýl eða ekki. Það á að taka mark á ef línan er dauf.
1 lína = Efnið inniheldur að öllum líkindum Fentanýl. (Dauf lína telst líka með)
2 línur = Efnið inniheldur að öllum líkindum EKKI Fentanýl. (Dauf lína telst líka með)
MYNDBAND